Kirkjufells.is

  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
  • default color
  • green color
  • cyan color
  • red color
Heim Fréttir
Fréttir
Þá eru allir hvolparnir komnir með ný heimili Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Laugardagur, 21 Ágúst 2010 17:34

Jæja.. nú eru allir hvolparnir hennar Kringlu farnir á ný heimili. Kraftur fór til hennar Arnþrúðar Heimisdóttir að Langhúsum í Fljótum, Kambur ætlar að búa hjá Atla á Glaumbæ í Skagafirði, Kleopatra er hjá henni Malin Person að Kolugili, Karmur er hjá henni Karen í Hafnarfirði og Kolur er komin á Selfoss til hennar Kristínar. Þannig að hér er bara allt dottið í dúnalogn, en það er nú samt pínu söknuður í gangi..allavegana hjá mér, veit ekki alveg með hana Kringlu mína;-)

Og ef að allt gengur að óskum, þá er næsta pörun hjá henni Kringlu áætluð á næsta ári (2011) Og meira að segja búið að ákveða hvaða hundur verður svo stálheppinn að fá að verða pabbinn;-) ;-)

 
Hvolparnir orðnir 5 vikna Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 16 Júlí 2010 12:45

Jæja nú eru hvolpaskottin orðin 5 vikna og þæg og góð að sjálfsögðu:D.  Á myndasíðunni minni er fullt af nýjum myndum sem Kolla Grétars tók.

 


 

 

 
Fréttir af hvolpunum Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Sunnudagur, 04 Júlí 2010 11:55

Jæja, þá er það konan sem lofaði að vera dugleg að uppfæra. Nú eru hvolparnir orðnir aðeins rúmlega 3ja vikna og ég horfi á þau stækka og tútna út. Kringla mjólkar alveg svakalega vel og er mjög góð móðir. Þau eru alveg ótrúlega lík í útliti og stærð og eru öll mjög róleg og góð "ennþá" ;-)

Öll eru komin með nöfn, en þau eru : Kraftur,Kolur,Kambur,Kruða og Karmur, en Karmur er á leiðinni í Hafnarfjörð og var kaupandi hans búin að velja nafnið þegar hún kom að skoða.(sniðugt að það skyldi byrja á kái :D) Þá er Kruða líka lofuð. Væntanlegir eigendur ráða svo endanlega nöfnunum á þeim að sjálfsögðu. Svo á ég von á eðalljósmyndara í heimsókn um eða eftir helgina þannig að þá koma örugglega flottar myndir inná síðuna.

 
Loksins loksins Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 14 Júní 2010 13:20

 

Jæja gott fólk, þá eru loksins komnir hvolpar hjá Kirkjufellsræktun. Hún Kringla mín eignaðist 5 hvolpa aðfaranótt 8. júní síðastliðin. Komu 4 rakkar og 1 tík og heilsast þeim öllum vel. Léttasti hvolpurinn var 300 gr og sá þyngsti 348 gr. Kringla er ennþá að átta sig á öllum þessum börnum en mér sýnist hún ætla að verða alveg frábær mamma.

 
Von á hvolpum í júní Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 20 Maí 2010 15:10

 
ISCH Kirkjufells Kringla


 
Eldhamars Freyr

Jæja, þá er nú kannski kominn tími til að fara að skrifa eitthvað á þessa heimasíðu mína sem allir eru örugglega steinhættir að fara inná,enda ekkert verið að gerast og konan ekki mætt með hundana á sýningar síðan Kringla varð ísl. meistari. Enn hvað um það. Helstu fréttir héðan eru þær að hún Kirkjufells Kringla byrjaði að lóða 25. mars síðastliðinn og ákvað ég að Eldhamars Freyr yrði sá heppni;-) Þannig að hér eru væntanlegir hvolpar í byrjun júní, og lofa ég því að vera duglegri að uppfæra síðuna mína eða um leið og eittvað fer að gerast á þessum bæ.
Óléttu mynd af Kringlu tekin 19. maí 2010
 
<< Byrja < Fyrra 1 2 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 2

Newsflash

Kringla eignaðist 5 hvolpa þann 8.júní 2010.  4 rakkar og 1 tík.  Það er hægt að skoða myndir af þeim á myndasíðunni.

Spurningin

Hvaða litur finnst þér fallegastur?
 

Ræktandi

Herdís G. Tómasdóttir
Fagurhólstúni 15
350 Grundarfjörður
Sími: 438 6513
GSM: 863 6514

kirkjufells@gmail.com

Uppfært 16.júlí 2010

Tegundalýsing

Íslenski fjárhundurinn er norrænn hundur og eini þjóðarhundur okkar Íslendinga.  Hann er afbragðs smalahundur sem þolir nánast hvaða veðráttu sem er. Íslendingurinn er þolgóður og mjög fimur og er m.a. notaður til  að reka og safna saman búfénaði.  Einnig er hann afbragðs félagi sem er ávallt brosandi.  Harðger og vinalegur hundur sem á það til að gelta, sem á þó ekki að vera einkennandi fyrir hundinn.  Íslenski hundurinn er viljugur, námsfús, forvitinn og fjörmikill.  Til eru tvö afbrigði, snöggt hárafar og langt hárafar (Lubbi).

Heimild: hvuttar.net