Kirkjufells.is

  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
  • default color
  • green color
  • cyan color
  • red color
Heim Kringla
Kringla Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

  

Nafn: Kirkjufells Kringla
Ættbókarnúmer: IS10680/07
Fædd: 29. nóvember 2006
Litur: Svartur þrílitur með blesu
HD FRI A
Augu OK
 

Dósin hún Kringla er úr þriðja goti Hörpu. Hún er skyldleikaræktuð og ég var ákveðin í að halda tík eftir úr þessu goti.  Hún Kringla var fljótlega ákveðin í að eiga heima hjá mér.  Hún vildi hvergi sofa nema við rúmið mitt og í eitt skiptið þegar hún tíndist gjörsamlega fann Kappi hana loksins inní erminni á peysu af mér úti í horni, hann horfði svo stíft á peysuna og potaði loksins í hana og þá hreyfði peysan sig og þar var þessi litli apaköttur, loksins komin í leitirnar.  Kringla er virkilega skemmtileg tík.  Ég hef farið með hana á hlýðninámskeið og er hún mjög fljót að læra það sem henni er kennt.  Henni hefur einnig gengið mjög vel á sýningum og er komin með 2 íslensk meistarastig og eitt cacib.  Hún var valin besti hundur sýningar á deildarsýningu DÍF 19. janúar 2008.

 
 

Newsflash

Kringla eignaðist 5 hvolpa þann 8.júní 2010.  4 rakkar og 1 tík.  Það er hægt að skoða myndir af þeim á myndasíðunni.

Spurningin

Hvaða litur finnst þér fallegastur?
 

Ræktandi

Herdís G. Tómasdóttir
Fagurhólstúni 15
350 Grundarfjörður
Sími: 438 6513
GSM: 863 6514

kirkjufells@gmail.com

Uppfært 16.júlí 2010

Tegundalýsing

Íslenski fjárhundurinn er norrænn hundur og eini þjóðarhundur okkar Íslendinga.  Hann er afbragðs smalahundur sem þolir nánast hvaða veðráttu sem er. Íslendingurinn er þolgóður og mjög fimur og er m.a. notaður til  að reka og safna saman búfénaði.  Einnig er hann afbragðs félagi sem er ávallt brosandi.  Harðger og vinalegur hundur sem á það til að gelta, sem á þó ekki að vera einkennandi fyrir hundinn.  Íslenski hundurinn er viljugur, námsfús, forvitinn og fjörmikill.  Til eru tvö afbrigði, snöggt hárafar og langt hárafar (Lubbi).

Heimild: hvuttar.net