Kirkjufells.is

  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
  • default color
  • green color
  • cyan color
  • red color
Heim Kappi
Kappi Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

  

Nafn: Kirkjufells Kappi
Ættbókarnúmer: IS07616/04
Fæddur: 29. september 2003
Litur: Kolóttur með hvíta skellu í hnakka
HD FRI A
Augu OK
 

Kappi er úr fyrsta goti Hörpu, einn af fimm systkinum. Ég ætlaði mér ekki að halda eftir hvolpi og var eiginlega búin að láta þá alla, en fullorðin hjón hér í Grundarfirði voru komin með Kappa, ætluðu reyndar bara að prófa að hafa hann, en eftir fyrstu nóttina og hann búinn að sofa uppí hjá þeim og pissa í rúmið þeirra þá leist þeim ekkert á þetta og skiluðu honum aftur;). Þannig að það endaði þannig að ég tímdi bara alls ekki að láta hann fara. Hann hefur verið sýndur á sýningum og er orðinn íslenskur sýningarmeistari og með eitt cacib. Honum hefur einnig verið kennt að spora og er góður í því.  Hann hefur verið settur á 6 tíkur og á falleg afkvæmi.

 

Newsflash

Kringla eignaðist 5 hvolpa þann 8.júní 2010.  4 rakkar og 1 tík.  Það er hægt að skoða myndir af þeim á myndasíðunni.

Spurningin

Hvaða litur finnst þér fallegastur?
 

Ræktandi

Herdís G. Tómasdóttir
Fagurhólstúni 15
350 Grundarfjörður
Sími: 438 6513
GSM: 863 6514

kirkjufells@gmail.com

Uppfært 16.júlí 2010

Tegundalýsing

Íslenski fjárhundurinn er norrænn hundur og eini þjóðarhundur okkar Íslendinga.  Hann er afbragðs smalahundur sem þolir nánast hvaða veðráttu sem er. Íslendingurinn er þolgóður og mjög fimur og er m.a. notaður til  að reka og safna saman búfénaði.  Einnig er hann afbragðs félagi sem er ávallt brosandi.  Harðger og vinalegur hundur sem á það til að gelta, sem á þó ekki að vera einkennandi fyrir hundinn.  Íslenski hundurinn er viljugur, námsfús, forvitinn og fjörmikill.  Til eru tvö afbrigði, snöggt hárafar og langt hárafar (Lubbi).

Heimild: hvuttar.net