| Harpa |
|
|
|
Nafn: Leiru Harpa Leiru Hörpu eignaðist ég eftir að hafa heimsótt góða vinkonu mína Joninnu Hjartardóttir sem þá var með got undan Fóu Feykirófu og Hektor. Ég heillaðist gjörsamlega af lítilli svartri feitabollu sem Ninna var búin að nefna Hörpu. En Harpa er alveg frábær tík í alla staði, ákveðin og mikill karakter sem veit alveg hvað hún vill. Hún hefur átt 3 got sem öll hafa komið vel út. Hvolparnir hafa verið mjög vænir við fæðingu, þyngsti 417gr, léttasti 355. Ég hef sýnt hana nokkrum sinnum á sýningum og hefur henni yfirleitt gengið vel. Einu sinn verið valin besti hundur tegundar og er með 1 íslenskt meistarastig og eitt cacib. |
Kringla eignaðist 5 hvolpa þann 8.júní 2010. 4 rakkar og 1 tík. Það er hægt að skoða myndir af þeim á myndasíðunni. |
Herdís G. Tómasdóttir
Fagurhólstúni 15
350 Grundarfjörður
Sími: 438 6513
GSM: 863 6514
Uppfært 16.júlí 2010
Íslenski fjárhundurinn er norrænn hundur og eini þjóðarhundur okkar Íslendinga. Hann er afbragðs smalahundur sem þolir nánast hvaða veðráttu sem er. Íslendingurinn er þolgóður og mjög fimur og er m.a. notaður til að reka og safna saman búfénaði. Einnig er hann afbragðs félagi sem er ávallt brosandi. Harðger og vinalegur hundur sem á það til að gelta, sem á þó ekki að vera einkennandi fyrir hundinn. Íslenski hundurinn er viljugur, námsfús, forvitinn og fjörmikill. Til eru tvö afbrigði, snöggt hárafar og langt hárafar (Lubbi).
Heimild: hvuttar.net